01 júní, 2007
Bergur Þorgils
brosir og hlær, og er jafnvel farinn að spjalla. Það hefur hins vegar ekki náðst almennilega á mynd. En hér er sú mynd sem best hefur fangað bros drengsins.
31 maí, 2007
Skírn, og já, líka gifting
Drengurinn var skírður, og nefndur Bergur Þorgils, í höfuðið á móðuröfum sínum.
Og svo trítluðum við hjónaleysin upp að altarinu undir söng Nonna.
Jú mei kiss ðö bræd, hehe
Og svo tíhí, við plötuðum ykkur og það var rosalega gaman, liggaliggalái.
Svo loks, sæt og góð við fífilbrekkuna fyrir framan Fríkirkjuna.
24 maí, 2007
Bláar varir
19 maí, 2007
Við pabbi...
07 maí, 2007
og fleiri myndir
Vegna fjölda áskorana...
01 maí, 2007
Tveir og tveir
Afarnir
Nokkrar ömmumyndir
Hérna er langamma Lala með strákinn sinn.
Og amma Hulda aðeins að tékka á honum. Þó skömm sé frá því að segja, gleymdist að taka hefðbundnar myndir á fæðingardeildinni með ljósmóðurinni, en látum þetta bara duga í staðinn.
Og amma Helga með prinsinn, sem lætur sér fátt um finnast.Því miður gleymdist að taka myndir af ömmu Stínu með stráksa, og Hólmfríður og Sjöfn eiga enn eftir að koma. Þvílíkt ömmuflóð, það verður gaman að eiga afmæli í framtíðinn, fullt af pökkum:)
26 apríl, 2007
Fyrir tæknivæddar langömmur
og reyndar alla aðra sem áhuga hafa...
Alveg nýfæddur í gærnótt, og mamma þreytt...
Spekingurinn
Alvarlegur
Hlæjandi, eða að minnsta kosti brosandi
Á hvolfi?
Glottandi
ÖÖÖÖÖSKRANDI
og svo sofandi
Alveg nýfæddur í gærnótt, og mamma þreytt...
Spekingurinn
Alvarlegur
Hlæjandi, eða að minnsta kosti brosandi
Á hvolfi?
Glottandi
ÖÖÖÖÖSKRANDI
og svo sofandi
25 apríl, 2007
Já, svo sannarlega


og bókstaflega er yfirskrift þessarar síðu orðin að veruleika. Nýtt líf hefur kviknað, og tilfinning sem hlýtur að vera ólýsanleg, vaknar í brjóstinu.
Já, það er ekkert grín að vera nýi gaurinn, en sem betur fer gengur það fljótt yfir, hann verður gamall kunningi áður en varir.
Maður er nú orðinn ansi mannalegur bara strax, enda fallegasta barn í heimi, en líka gáfaðasta, brosmildasta, og almennt svo ákaflega vel heppnaður:)
Hér er pabbinn að skipta á kúkableyju guttans númer tvö, hver hefði trúað því fyrir ári síðan?
Og hér er stráksi í fangi Bergs afa síns, en vel fór á með þeim, enda öruggt að vera hjá afa.En fyrir áhugafólk um mál og vog, þá var guttinn 15 merkur eða 3760 grömm og 53 sentimetrar á lengd. Hann fæddist kl. 01.15, 25. apríl 2007 og amma hans Hulda ljósmóðir tók á móti honum af stakri snilld.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)





























