09 september, 2006

Búið

Þá eru 25 skipti í geislum búin, kláruðust á fimmtudaginn. Þetta var fljótt að líða, hjúkkurnar á K-deildinni voru ósköp ljúfar og góðar, og þetta rann vel.

Geislameðferð er einhvern veginn allt öðruvísi en ég hélt. Hún er svona eins og að drekka 2 lítra af gosi í einu. Ekkert mál til að byrja með, um miðja flösku fer maður að hiksta, og undir lokin alveg pakksaddur, en þó alltaf pláss fyrir einn sopa enn. Samt langar mann ekkert í meira... og gumsið gæti alveg komið allt upp aftur:)

Það var eiginlega fyrst í síðustu vikunni sem ég fór virkilega að finna fyrir aukaverkunum. Þreyttur, en samt ekki syfjaður, brunninn, og hálf ómögulegur einhvernveginn.

Mér finnst ég finna meira og meira fyrir brunanum, en það er víst eðlilegt.

Eftir 6 vikur fer ég í myndatökur og eitthvað fleira, hitti síðan lækninn nokkrum dögum seinna, og verð þá vonandi útskrifaður.

Annars er allt gott að frétta, byrjaður í skólanum og lýst mjög vel á mig þar, Agnes er sæmileg og líka byrjuð í skóla, ég er á bíl þessa dagana, þannig að ekki er hægt að kvarta:)

10 ummæli:

BbulgroZ sagði...

Glæsilegt vinur minn!! Þessum áfanga lokið, til hamingju með það: )

Hildurina sagði...

Til hamingju með þetta Villi minn :) knús og kossar

Nafnlaus sagði...

Jess!!!!!!
Til hamingju. Nú er bara að einbeita sér að því að ná upp fyrri styrk. Mundu að fara ekki og geyst í hlutina. Hvíldin er jafn mikilvæg og æfingarnar (sbr. þagnirnar í tónverkunum).
Kv. Olla.

Nafnlaus sagði...

Hæ! Gangi ykkur allt í haginn, hetjufólk.

Ukkar Clausi.

Anna Sigga sagði...

Þú ert hetja, elsku Villi minn!
Nú er bara að snúa sér alfarið að ástinni og rækta og nóta!

Knús og kossar :-)

Nafnlaus sagði...

Við á hlaðinu hans Snorra sendum ykkur í Hafnarfjarðarhæðunum bestu kveðjur. Gott að hafa þennan áfanga að baki. Gleðjist með góðum söng og björtu sinni.

sjáumst

Við í Véum

Nafnlaus sagði...

flábælt minn kæri vin :)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju Villi minn !
Farðu vel með þig.
kv. Elma

Nafnlaus sagði...

Dugnaðardrengurinn :) Hugsa til þín og Agnesar hinnar sæmilegu líka.
Kv.Gísli.

Hildurina sagði...

Sakna þín krúttið mitt. Knús til þín og Agnesar.